Getum við gert eitthvað fyrir þig?
Auk þess að selja hreinlætisvörur í verslanir þá taka starfsmenn Blindravinnustofunnar að sér að pakka, flokka og merkja hina ýmsu hluti fyrir þá sem þess óska. Starfsmennirnir eru alltaf tilbúnir að taka að sér ný og hentug verkefni, því slíkt skapar fjölbreytni og vettvang fyrir hæfingu og endurhæfingu.
Á Blindravinnustofunni starfar samhentur hópur starfsmanna sem kappkostar að veita góða og skjóta þjónustu. Vanti þig að láta merkja, pakka eða flokka, hafðu þá endilega samband við Blindravinnustofuna og við leysum verkefnið hratt og vel.
Meðal þeirra verkefna sem starfsmenn Blindravinnustofunnar fást reglulega við eru flokkun á herðatrjám, að pússa og pakka þrívíddargleraugum fyrir bíóhúsin, ásamt pökkun á bréfum, kortum og tímaritum, pökkun og plöstun á geisladiskum og margs konar önnur störf.
Með því að fela Blindravinnustofunni verkefni leggur þú þitt af mörkum til að stuðla að auknu sjálfstæði blindra og sjónskertra einstaklinga.